Alls voru 230.626 einstaklingar, eða 62,9% landsmanna, skráðir í þjóðkirkjuna 1. júlí síðastliðinn samkvæmt samantekt Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.675 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.016 meðlimi. Hlutfallsleg fjölgun á sjö mánaða tímabili var mest í stofnun Múslima á Íslandi, þar sem fjölgaði um 90 félaga, eru nú 341. Það er fjölgun um 35,9%. Frá 1. desember síðastliðnum var fjölgunin talið í einstaklingum mest í Siðmennt, eða um 276 meðlimi. Í ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 216 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 528 og í zuism fækkaði um 167 meðlimi.

Í nýliðnum mánuði kom á skrá fimmtugasta og fyrsta trú- og lífsskoðunarfélagið. Það er félagið Lakulish jóga á Íslandi. Alls eru nú 30 skráðir félagar. Alls eru 7,3% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga, eða 26.806 einstaklingar. 54.002 landsmanna eru með ótilgreinda skráningu, eða 14,7%.